Hér ætla ég að skrifa það helsta sem skéði í þættinum í dag.
Tek fram að þetta er ekki í réttri röð.

Lyn fékk alveg nóg af því að reyna að vera góð við Mitch, sagði honum bara hreynlega að hypja sig því að hann væri ekki velkominn. Mitch spurði hvort að þau væri út af því að hann hefði setið inni, Lyn sagði að það hefði kannski einhvern þátt í því, en þá væri öll sagan ekki sögð…

Lolly kom í heimsókn til Lous, hann fór með hana að heilsa upp á Harold, Harold spurði hana hvernig væri á nýja heimilinu, Lolly sagðist ekki vita það, því að þau væru ekki flutt þangað enn…. Þá komst í ljós að John og Sandy eru að flytja með hana upp í sveit…

Harold tók Ramsbottom skiltið niður…


Serena hringdi nokkrum sinnum í Karl, Susan var orðin pirruð á því, sagði loks Karl frá áhyggjum sínum um hann og Serenu. Karl sagði henni að það væri ekkert að óttast, hann elskaði hana bara…

Þátturinn endaði síðan þannig að Mitch og Steph voru að fara til Sydney, þá var bankað og Steph fór til dyra, varð mjög hissa á svipinn og…………

P.s. ég veit hver þetta er, þeir sem vita það, ekki skrifa neina spoilera undir, það getur skemmt fyrir mörgum…
kveðja gudny89
It's a cruel world out there…