Í þættinum í dag þá var Toadie boðið að fara í kokteil boð hjá stórlöxunum í fyrirtækinu. Hann mætti þar og hann heyrði víst eitthvað sem hann átti ekki að heyra. En þar var eitthvað tryggingafyrirtæki sem tryggir byggingafyrirtæki sem er sennilega að fara á hausinn og enginn má segja neitt. Svo sagði Toadie eitthvað sem féll ekki alveg í kramið hjá hinum. En svo var Toadie að tala við Joe og fékk að vita að Joe tryggir hjá þessu fyrirtæki sem er að fara á hausinn.

Darcy var kosinn nýr fyrirliði krikketliðsins.

Susan fékk fullt af bréfum og hringingum frá ýmsum sem tengdust skólanum og vildi enginn að hún myndi hætta sem skólastjóri. Hún vissi ekkert hvað hún átti að segja né gera.

Karl og Darcy náðu að bjarga manni sem var að deyja en Karl var ekki með sjálfum sér við björgunina og var farinn að halda að hann væri orðinn kannski of gamall og ætti þá að hætta.

Maggie féll á einu prófi og náði því ekki að útskrifast. Hún var sár og ætlar alveg örugglega ekki aftur í laganámið en Evan vill að hún fari en ég held að hún fari ekki aftur.