Tad og Flick hættu saman í þættinum í dag!!!
En þau voru á hótelsvítunni og voru eitthvað vandræðalega. Tad ætlaði svo að kyssa Flick en hún sagði honum að hætta og þetta gekk ekki eitthvað svo þau ákváðu að fara heim. Og svo töluðu þau saman og fannst ekkert ganga, hún vildi ekki meira en að vera vinur hans og svona þetta vanalega.

Michelle var fúl úti Zack, hann hringdi nú í hana en hún vildi ekki tala við hann. Var hún grátandi utaní mömmu sinni og segja hvað hafði gerst. Joe kom svo heim og allt í gúddi nema það að Harvey er ennþá týndur og Joe ekki sáttur við það.

Toady byrjaði fyrsta daginn í vinnunni og þessi Tim sem hann átti að aðstoða er algjör asni. Hann líkti vinnunni saman við Survivor því það voru víst 4 byrjendur sem áttu að keppast um starfið. En svo var aðal lögfræðingurinn ekki alveg sáttur við að Toady væri með trúnaðarskjöl.

Libby var að taka viðtal við Dee á meðan hún var í vinnunni og það dó einhver stelpa sem Lib hafði verið að tala við. Og Einhverjar stelpur sem vinna með Dee voru eitthvað að tala um fósturlát Dee og hún heyrði það, einnig Lib. Svo man ég ekki hvernig þátturinn endaði.