Lou fékk sekt útaf Matt og félögum sem höfðu haldið partý eftir lokun á barnum. Lou var alveg brjálaður, hann missti líka af fundi með John Allen og einhverjum sálfræðingi sem á að “greina samband hans við Lolly” Aumingja Lou.

Svo var ball í skólanum. Aulinn hann Zack bauð Michelle með sér, með því skilyrði að þau mættu ekki gera GÁA (gælur á almannafæri). Flick fór náttúrulega með Tad á ballið og svo fengu þau lánaða forsetasvítuna á einhverju flottu hóteli, og má ímynda sér að eitthvað hafi gerst. Michelle fór á klóið á ballinu og heyrði að Bianca, “vinkona” hennar, var að baktala hana og setja út á fötin hennar, svo Michelle hljóp grátandi heim. Zack sá hana þegar hún strunsaði út, en gerði sig ekki líklegan til að fara að hugga hana, enda algjör aumingi, þ.e Zack og ljótur gaur. Gjörsamlega vonlaus lúser.

Þetta eru svona aðalatriðin í dag
OH.