Árleg áminng: 

Ég vil endilega hvetja ykkur sem skrifuðu ritgerðir í sögu-áföngum í vor, að senda þær hingað inn sem greinar eftir að þið fáið þær aftur frá kennaranum. Allavega ef hann gefur þeim sæmilega einkunn. Það skaðar aldrei að birta ritgerðinar og fá fleiri álit á þeim :)

Hafið bara í huga að stundum er gott að “snyrta” slíkar ritsmíðar og aðlaga til birtingar í nýjum miðli. Taka út allar óþarfa upplýsingar, t.d. nafn kennarans & áfangans - nema ykkur þyki sjálfum það skipta einhverju máli fyrir lesendur hér. 

Reynið frekar að hafa fyrirsögnina góða og lýsandi um efnið, textann hnitmiðaðan og vel fram settan með greinaskilum.

Takið mark á öllum athugasemdum og/eða leiðréttingum sem kennari hefur gert við ritgerðina, og farið eftir þeim áður en þið sendið “endanlega útgáfu” hingað.
 Notið “Forskoða” takkann áður en þið sendið endanlega, með því má oft sjá slæm mistök sem auðvelt er að leiðrétta.

Ég vona að þetta verði einhverjum söguáhugamönnum hvatning til að senda inn gott efni til birtingar hér, það er svo sannarlega engin vanþörf á :)
_______________________