Komnar eru tölur um fjölda flettinga á áhugamálinu í nóvember. Fjöldi flettinga var 29,552. Það er 38,53% aukning frá því í október og 77,33% aukning frá því í september. Í aðgengilegum skrám um virkni áhugamála, sem ná aftur til september 2004, hefur virkni áhugamálsins aldrei verið meiri.

Í september höfðu verið birtar 5 nýjar greinar, í október voru þær 9 og í nóvember 14. Þá bárust 17 myndir í september, 31 mynd í október og 20 myndir í nóvember.

Nú er spurning hvort jólaundirbúningurinn hægi á því flugi sem áhugamálið er komið á. Hvað segja notendur um það?
___________________________________