Komnar eru tölur um virkni áhugamála á Huga.is fyrir ágústmánuð en skv. þeim voru flettingar á áhugamálinu 15,602 en það var 0.29% heildarflettinga á Huga í mánuðinum.

Ágúst var þriðji besti mánuður ársins á Sagnfræðiáhugamálinu. Ég vildi gjarnan að sú mikla virkni héldist og að september yrði jafnvel enn betri mánuður. Þess vegna hvet ég notendur á áhugamálinu til að halda áfram að senda inn efni. Ekkert hefur jafnmikil áhrif á virkni áhugamála eins og greinaskrif en auðvitað eru notendur hvattir til að senda inn hvers kyns efni auk greina t.a.m. kannanir, myndir, atburði, tengla o.s.frv. Það er fullt af áhugaverðu efni sem hægt er að skrifa lítinn greinarstúf um, fullt af áhugaverðum spurningum sem hægt er að spyrja í könnunum og hellingur af áhugaverðum síðum á netinu. Þið megið endilega ausa þessu öllu saman inn á áhugamálið.
___________________________________