Gleymt lykilorð
Nýskráning
Sagnfræði

Sagnfræði

4.206 eru með Sagnfræði sem áhugamál
17.296 stig
708 greinar
848 þræðir
44 tilkynningar
3 pistlar
890 myndir
388 kannanir
27.233 álit
Meira

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.156 stig
STAVKA STAVKA 1.090 stig
ritter ritter 576 stig
br75 br75 266 stig
Rembrandt Rembrandt 206 stig
ornbj ornbj 192 stig
MooMoo MooMoo 162 stig

Stjórnendur

Fyrsti sagnfræðingurinn (17 álit)

Fyrsti sagnfræðingurinn Hér er málverk sem kallað er “The Historian”. Maðurinn á myndinni er kannski ekki “sagnfræðingur” í nútíma skilningi þess hugtaks, nær væri að kalla hann “sagnaþul”.

En hann markar sannarlega upphaf sagnfræðinnar. Hann segir yngra fólki frá miklum atburðum fortíðarinnar. Reynir að púsla saman frásögnum af því sem gerðist og fá sem skýrasta mynd af því, og miðla þeim fróðleik til yngri kynslóða.

Kannski á síðan drengurinn á myndinni eftir sjálfur að rannsaka “Veiðina miklu” síðar, og komast að því að sögurnar eru kannski ýktar eða ósannar af einhverjum orsökum. Og kenna sínum nemendum samkvæmt því. Hver veit? ;)

Coucy (4 álit)

Coucy Miðturn (e. stornghold) hins mikla Château de Coucy, eða Coucy kastala, að mínu mati magnaðasta kastala miðalda. Hann var byggður á þriðja áratugi þrettándu aldar og var frægur fyrir sína stóru og háu turna, sérstaklega miðturninn, en hann var um 31 meter í þvermál og 54 metra hár, og átti engan sér líkan. Fyrir vikið var kastalinn stolt hvers herra af Coucy, og tóku þeir upp rímuna “Roi ne suis, ne Prince ne Duc ne Comte aussi; Je suis le sire de Coucy” - “Ég er hvorki kóngur né prins, né heldur hertogi né greifi; ég er herran af Coucy”
Í fyrri heimsstyrjöldinni féll kastalinn í þýskar hendur. Hann varð vinsæll áfangastðaur fyrir herforingja, og keisarinn sjálfur heimsótti Coucy tvisvar. En í Mars 1917, samkvæmt skipunum Luddendorfs var 28 tonnum af dýnamíti beytt til að mölva turnana fjóra auk miðturnsins mjölinu smærra. Þessi villimannslegi gjörningur virðist aðeins hafa haft þeim tilgangi að gegna að pirra prinsin af Bæjaralandi, en hann hafði skrifað Luddendorf bréf þar sem hann bað sérstaklega um að kastalinn yrði ekki fyrir skemmdum. Nú standa aðeins uppi rústir af veggjunum, en svo gott sem ekkert er eftir af turnum, leifarnar af sprengingunni voru hreinsaðar upp eftir stríðið.
http://fr.wikipedia.org/wiki/Fichier:Chateau_de_Coucy_-_29_juin_1917.jpg
]Þessi mynd, tekin rétt eftir að turnarnir höfðu verið jafnaðir við jörðu gerir mig ávalt jafn dapran og reiðan.

Útrýmum Þýskalandi! (3 álit)

Útrýmum Þýskalandi! Hér er kort úr riti sem kom út í New York árið 1941 og nefndist “Germany must perish!”. Var það samið og útgefið af rugludalli að nafni Theodore N. Kaufman. Í þessu riti var velt upp spurningunni hvernig skyldi meðhöndla Þýskaland eftir að sigur hefði unnist í styjöldinni. Lausn Kaufmans var sú að gelda alla þýsku þjóðina! Þannig yrði þessu vandræðafólki útrýmt “á mannúðlegan hátt” á nokkrum áratugum. Landinu skyldi síðan skipt upp milli nágrannaþjóða líkt og kortið sýnir. (Kaufman var ekki mikið að spá í því hvort mannskapur fengist í þessar aðgerðir, eða hvort nágrannaþjóðir Þýskalands hefðu nokkurn áhuga á þessu).

Þessu var enda hvergi tekið alvarlega. Stórblaðið TIME var gagnrýnt harðlega fyrir að einu sinni “heiðra” þetta sorprit með ritdómi (þó sá dómur hafi kallað ritið og boðskapinn sínum réttu nöfnum). En fyrir Goebbels og félaga í Þýska áróðursráðuneytinu, var þetta hrein himnasending. Þeir notuðu þetta óspart allt til stríðsloka, til að sýna þýskum almenningi hvað óvinirnir (sérstaklega “Gyðingurinn”) ætluðu sér að gera Þýskalandi. Í þeim áróðri var Kaufman kynntur sem virtur og málsmetandi maður í Bandaríkjunum, dæmigerður fulltrúi “Gyðingavæðingar” þess mikla lands.

Þess ber þó að geta að önnur - þó ekki jafn öfgafull - plön fengu nokkurn hljómgrunn í bandaríska stjórnkerfinu. Frægust af þeim var “Morgenthau-áætlunun” en samkvæmt henni átti að uppræta allan þýskan þungaiðnað og gera landið framvegis að undirokaðri landbúnaðarþjóð. Það var snögglega hætt við það eftir stríðið, þegar menn sáu klárlega að Evrópa gat ekki án þýsks iðnaðar og viðskiptalífs verið.

http://en.wikipedia.org/wiki/Germany_Must_Perish!

Ég hvet síðan áhugasama eindregið til að skoða “external links”.

Flugmóðurskipið Graf Zeppelin (3 álit)

Flugmóðurskipið Graf Zeppelin Hér er þýska flugmóðurskipinu Graf Zeppelin hleypt af stokkunum árið 1938. Var það fyrsta og eina flugmóðurskip Þjóðverja sem náði svo langt - en lengra náði það heldur ekki, smíði þess var aldrei lokið.

Var það nefnt eftir hinum fræga loftskipasmið Zeppelin greifa, en í Fyrri heimsstyrjöld höfðu loftskip hans gert fjölmargar árásir á Bretland í skjóli nætur.

Ýmis ljón voru í vegi fyrir því að þetta skip yrði klárað. Ekki síst var Hermann Göring yfirmaður Luftwaffe (flughersins), alfarið mótfallinn því að Kriegsmarine (flotinn) færi að stofna sínar eigin flugsveitir. Engu að síður voru þó hannaðar “flota-útgáfur” af Me-109 orrustuflugvélinni og Ju-87 “Stuka” sprengjuflugvélinni, með lendingarkrók og slíkum græjum.

Eftir að stríðið hófst var þetta allt sett í “low priority” og síðan hætt við. Enda mjög vandséð hvernig eitt þýskt flugmóðurskip, með byrjenda-áhöfn að að auki, hefði átt að koma að gagni í baráttunni við hina margfalt stærri og reyndari flota Bandamanna. Þar voru það kafbátarnir sem öllu máli skiptu.

http://en.wikipedia.org/wiki/Graf_Zeppelin_(aircraft_carrier)

Hitler í feitu chilli (5 álit)

Hitler í feitu chilli H

Trivia (7 álit)

Trivia soddan erfið er þessi

Trivia (8 álit)

Trivia Hver er maðurinn?

Smá grín til gamans (3 álit)

Smá grín til gamans Hér er merkilegt bréf, ný-uppgötvað af snillingunum á cracked.com , sem virðist hafa misfarist í pósti snemma á síðustu öld :D

Trivia (7 álit)

Trivia Fyrst að Stalin kláraðist svona fljótt, þá kemur ein aðeins erfiðari.

Smá trivia (5 álit)

Smá trivia Ætti ekki að vera svo erfið held ég.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok