Góð bók Fyrir áhugasama mæli ég eindregið með þessari. Þetta er bara, sveimérþá að ég held, besta bókin sem ég hef nokkurntíman lesið um stríðið á Austurvígstöðvunum í WWII.

700 síður, en maður tekur ekki eftir því, svo ljúft rennur hún - stundum er textinn eins og í bestu spennusögu.

Að mörgu leyti svipuð hinum álíka frábæru “Stalingrad” og “Berlin” Antony Beevors, en rekur heildarsöguna, reyndar með meiri áherslu á fyrri partinn, 1941-42.

Grípið hana endilega ef þið rekist á hana á í búð eða bókasafni.
_______________________