Sovéthöllin Það hafa margir áhuga á hinum vægast sagt mikilfenglegu byggingaplönum Hitlers og “húsameistara” hans Alberts Speer í Þýsklandi nazismans. Meira um þau hér http://en.wikipedia.org/wiki/Welthauptstadt_Germania


Færri leiða hinsvegar hugann að hinum álíka stórfenglegu plönum Stalíns & félaga í Rússlandi. Nokkuð af þeim komst reyndar í framkvæmd, t.d. Moskvuháskóli, sem þykir svo yfirþyrmandi bygging að menn geta fyrirgefið hversu ljót hún er ;)

Margir prísa sig hinsvegar sæla með að hætt var við byggingu á þessum hrylling. “Sovéthöllin” hefði orðið langstærsta bygging heims, og væri það enn ef byggingu hennar hefði verið lokið. Já, það var actually byrjað á þessu, en öllum framkvæmdum svo slegið á frest í WWII, loks endanlega hætt við.

Nánar:
http://en.wikipedia.org/wiki/Palace_of_Soviets

http://io9.com/5059056/the-moscow-that-never-was
_______________________