Orrusta sem aldrei varð Hér er mynd sem ég birti “ages ago” á flugáhugamálinu, en vakti lítinn áhuga þar. Þannig að ég gef mér það bessaleyfi að endurbirta hana hér ;)


Þetta er ímyndaður loftbardagi sem kannski hefði átt sér stað ef WWII hefði dregist á langinn um 2-3 ár. Vélin sem tapar bardaganum er bresk Gloster Meteor, sem var raunveruleg, fyrsta breska orrustuþotan.

Focke Wulf Super TL var ein af fjölmörgum framúrstefnulegum flugvélum á teikniborðum Þjóðverja í lok stríðsins, og hefði líklega farið í loftið 1946 eða 47 hefði stríðið haldið áfram.

Bæði Sovétmenn og Bandaríkjamenn nýttu sér síðan þessar þýsku rannsóknir við hönnun sína og útkoman varð vélar eins og Mig-15 og F-86.

Meira um þýsku teikniborðs-vélarnar og hvernig þær hefðu orðið, hér: http://www.luft46.com/


Framlenging á styrjöldinni er annars feykilega áhugavert íhugunarefni. Hvernig hefði slíkt getað komið til, og hvernig hefðu hlutir farið þá?
_______________________