Sagnfræði Adolf Hitler, leiðtogi þýska nasistaflokksins fæddist 20. apríl 1889 í Austurríki-Ungverjalandi en dó fyrir eigin hendi 30. apríl 1945 í Berlín í Þýskalandi þegar hann og fylgismenn hans höfðu tapað síðari heimsstyrjöldinni.

Hann varð leiðtogi flokksins 1920-1921, náði völdum yfir Þýskalandi árið 1933 þegar hann varð opinberlega kanslari, og hélt þeim til dauðadags. Þegar Paul von Hindenburg, forseti, dó tók Hitler sér titilinn ‘Führer’ eða foringi