George Bush.

Samansetning af “George” = “Genesis Over Genitals” og
stafarugli af Bush= B. Shu, sem eins og allir vita, er Benjamin Shu. Japanskur hægrihandamaður svissnesks fréttajöfurs að nafni “Reuters”!

Tékkaðu á botni hverrar útlendu fréttar í hvaða dagblaði sem er og þar mun standa pínulitlum stöfum “Reuters”!!!
Halló!!!?

Hvernig getur það verið að EINN maður skuli skrifa ALLAR útlendar fréttir í heiminum og í hvaða tilgangi!?

Jón (dulnefni) frændi minn sem að vinnur næturvaktir hjá Securitas í útvarpshúsinu hefur séð til Loga bergmanns að næturlagi kaupa fréttabúta af manni í síðum frakka með svissneska fánanum á erminni í skiptum fyrir eiturlyf!

Eiturlyf sem eru ræktuð af ríkinu í falinni rannsóknarstofu í gamla reykherbergi Pravda. Haldið þið að eldsvoðin hafi verið tilviljun???
Vinkona mín sem að stundaði reglulega salernismök á Pravda sagði einmitt að hún hafi fundið hasslykt úr reykherberginu þaðan stuttu fyrir brunan
Tilviljun? Nei, tilgangur!

Fer hönd í hönd með reykbannið. Það yrði grunnsamlegt ef að AÐEINS Pravda skildi loka reykherberginu sínu.

Ef að þið lesið ferilskrá Loga Bergmanns í séð og heyrt tbl. 14. 2005, dálkurinn við hliðina á tímakaupinu og sjúkraskýrslu hans kemur fram að hann talar Ensku, frönsku og grunnskóladönsku, en EKKI Svissnesku!


Fáir muna eftir “The seattle” post, en þeir sem gera það muna væntanlega eftir yfirfangsmikilli grein um að Vatikanið væri að auðga Úran til að sprengja allar getnaðarvarnarfyrirtæki hins vestræna heims árið 1915.
Manst þú eftir að hafa séð blað sem að hét The Seattle post hmm? Nei?
NÁKVÆMLEGA!

Viku eftir að The Seattle Post “gufaði upp” kom maður að nafni Reuters fram á sjónarsviðið.
Engin sá framan í hann þó. Hann var alltaf með Richard Nixon Grímu þegar sást til hans í dimmum húsasundum.
Hann hafði alltaf söluvæna frétt undir höndunum langt á undan öllum öðrum hmm….
Kannski því að hann var grunn meðlimur í topp-leynilegri valdaklíku sem kallaðist “The council of 4” hérna er heimasíðan þeirra:
www.council_of_4.org
Og þessi valdaklíka startar shitti um allan heim sem Reuters skrifar um jafnóðum og eignaði sér þannig markaðinn!


Þetta kemur að sjálfsögðu saman með því að Páfin, Reuters, G. W. Bush og Logi Bergmann (þeir “4!” menn sem stjórna öllu sem skiptir máli) eru í sértrúarsöfnuði sem dýrkar “eitthvað dýr”, sem að nærist á olíumengun og spanna þannig “ráðsdeild fjórmenninga”


Ef þú trúir mér ekki, kíktu bara á Wikipedia!


So…. anywho hver kaupir þetta Jesú dæmi? Talandi um þéttofna lygi pff…
Róm var ekki brennd á einum degi…