Ég set hér link á alræmdustu gyðingahaturs-ræmu sem gerð var í Þriðja ríkinu. “Der Ewige Jude” þýðir “Hinn eilífi Gyðingur”, en á þýsku er þetta tilvísun í hina fornu þjóðsögu um “Gyðinginn gangandi”.

Þessi mynd er ein sú svæsnasta af slíkum myndum, hatrið sem skín í gegn er með hreinustu ólíkindum. Myndin var sýnd bæði í Þýskalandi og hernumdu löndunum, við dræmar undirtektir.

Hér er myndin í heild sinni, með enskum þul: http://video.google.com/videoplay?docid=4664969119079760194&q=der+ewige+jude&hl=en

Wikipedia:
http://en.wikipedia.org/wiki/The_Eternal_Jew_%28film%29
_______________________