Var að koma úr matarboði það sem mér var sagt kenningu nasista um krist.

Nasistar trúðu því að Jesús hafi verið hálfur gyðingur og hálfur germani en Maríu Mey á að hafa sofið hjá germanskum málaliða sem var í rómverska setuliðinu og til að vera ekki drepin hafi hún gifst Jósefi. Jesús fæðist svo og er hann hann mjög ljósyfirlitum með blá augu. 12 ára flytur Jesús svo til Alexandríu og lærir gríska heimspeki og læknisfræði meðal annars.

Hann snýr svo aftur til Ísraels og byrjar að predika grísku heimspekina (dæmisögur og kærleikur) og fer að lækna fólk. Þegar hann fer svo að fá lærisveina halda Rómverjanir að hann sé að undirbúa uppreisn og krossfesta hann. Á þessum tíma var Jesús komin með berkla og þegar þeir stinga hann með spjótinu á krossinum kemur ekki blóð út heldur vatn sem hafði safnast saman í bjúg. Þeir halda auðvitað að hann sé dáin svo að þeir flytja hann í gröf þar sem hann vaknar nokkrum dögum síðar og ýtir steininum í burtu. Jesús deyr svo úr berklum 2 árum seinna.