Svokallað “re-enactment” af fornum orrustum er sífellt að að verða vinsælla, og nú loksins fáum við Íslendingar að slíka sögu-áhugamenn í “Aksjón” !!

“Endurleikara”-hópurinn “The Spartans” er nefnilega kominn til landsins, og ætlar að setja á svið svakalega forn-gríska orrustu. (Mann grunar nú, í ljósi vinsælda myndarinnar “300” hvaða orrusta það verður) Það er næsta víst að “barist” verður til síðasta manns, allt í hárréttum búningum ;)

Nú mæta sko allir niður á Miklatún kl. 15 í dag og upplifa skemmtilegt sjóv með alvöru “atvinnumönnum”! :)

Heimasíða “Spartverjanna” http://www.spartanwarband.com/
_______________________