Nú er að fara að koma út nýtt tímarit, “Sagan öll”. Þetta ætti að vera söguáhugamönnum fagnaðarefni, því fyrri tímarit um sögu hér á landi hafa oft verið full “þurr og fræðileg” til að vekja áhuga almennings. Af forsíðunni að dæma virðist þetta ætla að fylgja annarri stefnu. Og ekki er verra að hafa Illuga Jökulsson sem ritstjóra.

Kíkið á fréttina: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1253242

Sjálfum líst mér vel á þetta framtak, og mun örugglega fá mér áskrift.
_______________________