Ég ákvað uppá mitt eindæmi að setja hér inn nýja könnun, þar sem sú sem fyrir var hafði að mínu mati “runnið sitt skeið”. En þegar hún birtist, hafði röð spurninganna riðlast, þannig að hún virðist ekki rökrétt.

Svo það sé klárt, þá birtust spurningarnar í rangri röð, og átti ég við öll “Já” svörin með “ofantöldu”.

En notið þennan þráð endilega til að kommentera á hverjar þær hugleiðingar sem könnunin vekur hjá ykkur :)

Bætt við 13. desember 2006 - 19:12
Fyrir þá sem ekki vita, þá var ég hér að tala um fyrri könnun, ekki þá sem núna er uppi!
_______________________