Sælir kæru sagnfræði-hugarar,

Mér hefur hlotnast sá heiður að vera stjórnandi á þessu áhugamáli ásamt gthth. Þetta er hlutverk sem ég hlakka til að takast á við – þó ekki vonist ég eftir átökum ;)

Í krafti hins nýja “embættis” langar mig að hvetja alla áhugamenn um sagnfræði - hvort sem þeir eru gamalreyndir hér eða nýliðar - til að efla áhugamálið með að senda inn greinar og myndir, eða stofna til umræðna. Það er ekki ætlun mín að draga mig neitt í hlé frá slíku sjálfur, þrátt fyrir nafnbótina :)

Með bestu kveðju og von um góð viðbrögð,
DutyCalls
_______________________