Ég veit að margir bíða eftir áframhaldi á greinaflokki mínum um styrjaldir Araba og Ísraelsmanna. Síðast var ég búinn að lofa þeirri næstu nú um mánaðamótin. Ég sé því miður (af ýmsum orsökum) ekki fram á að geta staðið við það, og líklega verður næsta grein mín um eitthvert annað efni.

Það þýðir þó alls ekki að ég sé hættur við greinaflokkinn. Þessar greinar koma fyrir rest, þegar ég kemst í rétta stuðið og kem því í verk að viða að mér meiri heimildum um efnið, sem mér finnst þurfa. Ég vil síður láta eitthvað frá mér fara sem ég er ekki sjálfur ánægður með.

Vildi bara láta menn vita af þessu.
_______________________