Ég á varla orð til að lýsa hrifningu minni eftir að hafa horft á fyrsta þátt BBC-seríunnar “Space Race” á RÚV. Þetta var fyrsti af fjórum þáttum um geimferðakapphlaup Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.

Þetta var í fáum orðum sagt frábærlega vandaður þáttur. Fróðleikur í bland við leikin atriði eins og við þekkjum frá Discovery, en vandaðra en nokkru sinni fyrr, greinilega mikill metnaður og fjármagn að baki. Svona, og akkúrat svona, eiga fræðsluþættir um sögu að vera!
_______________________