Ekki ætla ég að þykjast vera stjórnandi hérna, en var nú samt til gamans að taka saman hverjir af þeim sem sögðust “ætla að senda grein inná þetta áhugamál í haust” hafa staðið við það.

Samkvæmt minni talningu (og ég nennti nú ekki að tvítelja til staðfestingar), eru þeir 8 af 50.

Þessir 8 eru: 911Carrera, Bossos, Copperfield, DutyCalls, isgurdurgur, Lecter, Liverpool og Ragnarr.

Svo hefur líka heilmikið af fólki sem ekki er á þessum “ætla” lista, sent greinar hingað, sem auðvitað er hið besta mál.


Annars vona ég að stjórnandi vor birti fljótlega á nýja árinu fjölbreyttari og nákvæmari statistík um áhugamálið síðastliðið ár, einskonar “ársuppgjör”.

Set hér með fram þá tillögu, og vona að einhverjir styðji hana :)
_______________________