Ólíkt því sem nýnasistar halda fram þá eru völd gyðinga innan kommúnismans og kapítalismans fremur lítil hlutfallslega.

Drebenson hélt því fram um daginn að:

Tí milljónir evrópumanna dóu vegna Sovésks Bolsévisma sem var meira og minna undir stjórn gyðinga í austur-evrópu.

Sem er hreint út sagt kjaftæði því gyðingar urðu fyrir ofsóknum af hendi Sovétmanna líka. Sovétmenn grunuðu gyðinga um allskyns samsæri gegn kommúnismanum. Rétt eins og Hitler grunaði gyðinga um samsæri með kommúnismanum. Reyndar var Hitler með ýmsar órökréttar ranghugmyndir um heiminn.
Sovétmenn studdu við bakið á aröbum í baráttu þeirra gegn Ísrael í kalda stríðinu, á sama tíma BNA studdi við bakið á Ísrael.
Það er rétt að Ísrael fær mikin fjárstuðning frá BNA í gegnum gyðinga búsetta þar. Aftur á móti er rangt að halda því fram að gyðingar fari með öll völd í BNA.
Satt að segja er listinn yfir gyðinga þingmenn, ráðherra, hershöfðingja, dómara og gyðinga almennt í mikilvægum stöðum ekkert sérlega langur svo ég viti til. Ég bið bara þá sem vilja halda gyðingasamsærinu á lofti að benda mér á þessa valdamiklu gyðinga.

Eða stýra þeir þessu öllu kannski bakvið tjöldin?…

Ef þið lesið t.d. fyrri grein mína um Wilson kemur í ljós að fyrsti hæstarréttardómari sem var gyðingur komst í embættið árið 1920, um svipað leyti og konur fengu kosningarétt. Fram að því hafði embættið verið einokað af hvítum karlmönnum sem ýmist höfðu verið af enskum eða norðurevrópskum uppruna.

Harding, forsetinn sem fylgdi á eftir Wilson studdi lagafrumvarp sem setti meiri takmörk á alla innflytjendahópa nema hvítt fólk frá Norður Evrópu. Þeir sem urðu takmarkaðir voru austurevrópubúar sem voru fjölmargir gyðingar að flýja ofsóknir í heimalöndum sínum.

Ég fæ ekki betur séð en að ítök gyðinga hafi verið fremur lítil þá sem og nú.

Gyðingar virðast nú ekki vera máttugri en svo að þeim reynist ómögulegt að knésetja geðbilaðan skákmann. Nú erum við Íslendingar búnir að ögra gyðingavaldinu í BNA, ég bíð bara eftir refsivendinum ógurlega. Er ekki Bush og allt þetta lið undir stjórn gyðinga.

Nefndu mér tvo gyðinga í stjórn Bush Drebenson. Eða jafnvel bara einn.