Tyrkjaránið
Þann 16. júlí 1627 réðust um 300 sjóræningjar frá Algeirsborg á Vestmannaeyjar. Vestmannaeyingar, höfðu komið sér upp vörnum við höfnina en sjóræningjarnir sigldu, fram hjá höfninni, suður eftir eynni og gengu á land á Ræningjatanga og komu þannig Eyjamönnum í opna skjöldu. Sjóræningjarnir dvöldu 3 daga í Vestmannaeyjum. Þeir handtóku fólk, bundu á fótum og höndum og geymdu í dönsku verslunarhúsum, drápu þá sem veittu mótspyrnu eða þóttu ekki söluvænir og eltu uppi flóttafólk sem flúið hafði til fjalla. Alls námu Tyrkjaránsmenn 234 Vestmannaeyinga á brott og seldu hæstbjóðenda í Algeirsborg. Þeir drápu um 36 manns og um 200 manns tókst að fela sig.
Ólafi Egilssyni, öldruðum presti, var sleppt stuttu eftir komuna til Algeirsborgar til þess að hann gæti skipulagt söfnun lausnagjalds heima á Íslandi. Söfnunin gekk heldur dræmt fyrst um sinn enda Vestmannaeyjar í lamasessi eftir árásina og brottnám um helmings íbúanna og danska konungsveldið var í fjárhagsvandræðum. Nokkrum árum síðar bar söfnunin árangur og 27 Vestmannaeyingar sneru aftur til heimahaga eftir 9 ára þrælavist í Algeirsborg. Aðdragandi og sögulegt umhverfi Tyrkjaránsins í Vestmannaeyjum
Þann 16. júlí 1627 gekk fjölmennt lið ræningja á land í Vestmanneyjum úr þremur sjóræningjaskipum frá Algeirsborg, höfuðborg Alsír, sem lagt höfðu upp í ránsleiðangur til Íslands meðal annarra landa á norðurslóðum. Þeir höfðu þegar farið um með ránshendi og drepið fólk á leið sinni um Austfirði frá 5. - 13. júlí. Þeir voru með alls 110 íslenska fanga um borð auk danskra sjómanna við komuna til Eyja. Eyjamenn sem þegar höfðu frétt af atferli ránsmanna í Grindavík höfðu í fyrstu nokkurn viðbúnað en þegar vikurnar liðu og ekkert sást til ræningja færðist værð yfir fólkið. Á leiðinni höfðu sjóræningjarnir hertekið enska duggu og neytt áhöfnina til að vísa sér góða leið til Vestmannaeyja. Sagan segir að einn áhafnarmanna af duggunni hafi vitað af fyrirhugaðri mótspyrnu við höfnina og því ráðlagt ræningjum frá því lenda þar. Sjómaðurinn sem var líklega vel kunnugir á þessum slóðum vísaði þeim á afvikinn áningarstað, á tanga, suður af Brimurð sem heitir síðan Ræningjatangi. Þaðan réðust ræningjarnir til atlögu Eyjamönnum að óvörum. Það hafði sést til skipanna seilast í átt til eyjanna allt frá því um morguninn en er kvölda tók yfirgaf varnarliðið stöður sínar því að margir töldu að þarna væri um dönsk varðskip að ræða og að auki höfðu þau vart mjakast nær vegna mótbyrs allan daginn. (Þorsteinn Helgason 1996 og Sigfús M. Johnsen)



Tyrkjarán í Grindavík
Annar leiðangur ræningja frá Salé í Marokkó hafði þá nýlega yfirgefið Ísland eftir viðkomu í Grindavík þar sem þeir tóku 15 Íslendinga til fanga og drápu tvo. Einnig rændu þeir fé, hirtu öll verðmæti, hertóku tvö kaupskip og tóku áhafnirnar til fanga. Ferðinni var síðan heitið til Vestfjarða en sjóræningjarnir hættu við er þeir fréttu af enskum herskipum á þeim slóðum. Í staðinn var sótt að Bessastöðum þar sem tekið var á móti þeim með fallbyssuskotárás úr skansinum. Á fjöru strandaði skip þeirra á skeri. Þeim tóks að losna en þetta varð til þess að þeir hörfuðu heim á leið. Siglt var með fanga til Salé þar sem þeir voru seldir í þrældóm. (Þorsteinn Helgason, Jón Þorsteinsson og Helgi Þorláksson).

Hverjir voru Tyrkir?
Algeirsborg var að formi til hjálenda soldánsins í Miklagarði (Istanbúl). Marokkó stóð hins vegar utan við Tyrkjaveldi. Íbúar beggja landa voru þó oft kallaðir Tyrkir eins og múslímar voru yfirleitt nefndir um aldabil. Mikið hatur og tortryggni ríkti á milli hinna kristnu Evrópuþjóða og hinna múslimsku ,,Tyrkja“. Það má m.a. rekja til brottreksturs tugþúsunda Mára frá Spáni. Hin múslimsku borgríki uxu sem sjóræningjamiðstöðvar með flota atvinnusjóræningja herjandi á ströndum Miðjarðarhafsins. Í flota þeirra var fjöldi evrópskra sjómanna og skipstjórnarmanna sem gerst höfðu liðsmenn Tyrkja.

Ástandið í Evrópu og verslunin við Englendinga
Allt frá siðaskiptum hafði ríkt mikill ófriður í Evrópu sem náði hámarki í 30 ára stríðinu frá 1618-1648. Hollendingar voru t.a.m. í frelsisstríði gegn Spáni. Spánverjar áttu líka í endurteknum útistöðum við Englendinga og Danir við Svía.. Mikill ágreiningur myndaðist um kaupsiglingar milli ríkja og heimsálfa og ólga jókst í samskiptum ýmissa aðila.
Þegar herafli ófriðarríkja var veikur gripu stjórnvöld oft til þeirra ráða að veita sjóræningjum opinbert leyfisbréf til að herja á andstæðingana og var gróða skipt eftir ákveðnum hlutföllum. Spánverjar komu sér t.d. upp sjóræningjamiðstöð í flæmska hluta Niðurlanda sem enn tilheyrði þeim, einkum borginni Dunkirk. Á tímum Tyrkjaránsins áttu bæði Englendingar og Danir fullt í fangi með stríðsrekstur svo ekki sé minnst á stöðug sjórán bæði ,,Tyrkja” og Dunkirkmanna í Atlantshafi. (Þorsteinn Helgason)
Englendingar höfðu sótt miðin við Íslandsstrendur og stundað viðskipti í verulega mæli frá upphafi 15. aldar. Danir höfðu gert ítrekaðar tilraunir að banna eða a.m.k. takmarka umsvif Englendinga en því var tekið misalvarlega. Árið 1583 samþykktu Englendingar að versla ekki við Íslendinga og veiða aðeins á tilteknum svæðum með tilskildum leyfum. Dönum var sérstaklega í mun að vernda hagsmuni sína í Vestmannaeyjum því þær þóttu mjög arðbærar. Danakonungur talaði t.a.m. um löndin sín tvö; Ísland og Wespenö (Vestmannaeyjar).
Vegna ófriðar á Atlantshafi voru dönskum og enskum kaup- og fiskiskipum veitt fylgd á leiðinni til Íslands til að verjast sjóræningum en vegna bágs ástands bæði í Danmörku og í Englandi 1627 voru Íslandsstrendur auk danskra og enskra skipa nær óvarin fyrir árás Tyrkjanna.Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum
Eftir að Vestmannaeyingar gerðu sér grein fyrir að Tyrkirnir myndu ekki koma á land við höfnina, reið danski kaupmaðurinn, Lauritz Bagge, ásamt nokkrum mönnum suður eftir eyjunni til að sjá hvort hægt yrði að verjast innrásinni. Hann sá að settir voru út bátar þegar skipin voru komin suður í Bót milli Sæfjalls og Litlahöfða en þar er alls staðar bratt uppgöngu. Hann sendi skilaboð til skipstjórans á dönsku skipi sem lá við bryggju, um að safna liði vopnaðra manna til að verjast komu ræningjanna. Vörnin hefði verið möguleg ef ræningjar hefðu reynt innrás frá þeim stað. Fljótlega sá hann þó að ræningjunum snerist hugur og stefndu þeir suður fyrir og komu í land á Ræningjatanga sem auðveldur er uppgöngu. Kaupmaðurinn Lauritz áttaði sig á því að um ofurefli yrði að etja og sneri við til kaupstaðarins. Á leiðinni mætti hann skipstjóranum og liði hans og sneru þeir allir til kaupstaðar. Kaupmaðurinn og skipstjórinn, ásamt fjölskyldu og fylgdarliði, komust undan á árabátum til meginlandsins. Fyrir flóttann hafði skipstjórinn reynt að sökkva skipi sínu sem lá við bryggjuna til að koma í veg fyrir að ræningjarnir myndu nema það á brott. Einnig bjó kaupmaðurinn svo um að fallbyssurnar yrðu gagnslausar ræningjunum ef þeir tækju þær á sitt vald.



Innrásin hefst
Um þrjúhundruð manns stigu á land í Vestmannaeyjum, skiptu sér í þrjár fylkingar og héldu í átt að höfninni. Fyrsta fylkingin hélt í átt að Ofanleiti, önnur fór vestan Helgafells og kom að bæjunum í Dölum. Þriðja fylkingin fór austan við Helgafell og komu þeir að Kirkjubæ og að Vilborgarstöðum. Á efstu bæjunum komu þeir eyjarbúum mest á óvart því ekki var búist við komu þeirra sunnan frá og átti fólkið þar sér engrar undankomu auðið. Íbúar neðar í byggðinni höfðu hins vegar einhverja viðvörun af háreistinni á eyjunni og gátu forðað sér á flótta. Sjóræningjarnir gripu alla sem urðu á vegi þeirra, bundu á höndum og fótum, og smöluðu þeim saman í dönsku verslunarhúsin.

Flótti undan sjóræningjum
Vestmannaeyingar sem veittu mótspyrnu eða litu ekki út fyrir að vera söluhæfir voru umsvifalaust drepnir. Þegar föngunum hafði verið komið fyrir í húsunum voru nokkrir ræningjanna látnir standa vörð. Á meðan fóru hinir í leit að fólki sem komist hafði undan og lá í felum um alla eyjuna. Þeir fundu marga, sem flúið höfðu, í skreiðarbyrgjum hátt uppi í Fiskhellum, sem er þverhnípt bjarg. Flóttafólkið varð furðu lostið af undraverðri fimi ræningjanna við bjargklifið. Þeir sem ræningjarnir náðu ekki til voru umsvifalaust skotnir niður.

Saga Jóns píslarvotts
Austur í Urðum, í Rauðahelli , var séra Jón Þorsteinsson á Kirkjubæ í felum ásamt skyldfólki sínu og fleirum. Einn manna hans gægðist út um hellismunnann til að gá að ferðum ræningjanna en þá sást til hans og var hann drepinn. Með því komst upp um felustaðinn. Jón gekk út og var höggvinn niður með það sama og fólkið hans tekið höndum. Sagan segir að um 100 manns hafi falið sig í helli í Herjólfsdal sem síðan er kallaður Hundraðmannahellir.

Sagan af Sængurkonusteini
Sagan um Sængurkonustein er líka alkunn. Kona ein ól barn sitt þar en steinninn er norðvestur af Helgafelli. Ræningjarnir hlífðu bæði konunni og barninu og reif annar af skikkjunni sinni til að sveipa um barnið

Lok flóttans
Ræningjarnir leituðu að flóttafólki fram á kvöld þann 18. júlí. Talið er að um 200 manns hafi tekist að fela sig fyrir ræningjunum í þá þrjá sólahringa sem á þessari heimsókn stóð. Eftir að öllum föngunum hafði verið komið fyrir í dönsku verslunarhúsunum var hafist handa við að skilja að þá sem átti að flytja með til Algeirsborgar og hina sem ekki var líkegt að lifðu ferðina af. Þeir sem ekki voru líklegir til sölu voru þvingaðir inn í verslunarhúsin á ný, útgönguleiðir voru byrgðar og kveikt í húsunum. Ræningjarnir brenndu einnig Landakirku og höfðu á brott með sér skip danska skipstjórans sem honum hafði ekki tekist að sökkva. Talið er að alls hafi um 36 manns verið teknir af lífi. Ræningjarnir eru hafa líklega yfirgefið eyjarnar með 243 fanga sína, sem var þá líklega um helmingur íbúa. Einnig höfðu þeir á brott með sér búfénað, kirkjumuni og margt annað verðmætt. (Guðlaugur Gíslason; Eyjar gegnum aldirnar og Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja)


Fangarnir í Algeirsborg
Við komuna til Algeirsborgar voru Íslendingarnir seldir hæstbjóðanda. Ólafur Egilsson prestur að Ofanleiti í Vestmanneyjum var leystur úr haldi, enda kominn til ára sinna, og sendur heim til Íslands til að safna fyrir lausnargjaldi. Hann komst loks til Kaupmannahafnar í mars 1628 og til Íslands um sumarið. Fjársöfnunin gekk hins vegar heldur dræmlega. Í Vestmannaeyjum var allt í lamasessi og konungsvaldið hafði úr litlu að spila eftir ósigur í þrjátíu ára stríðinu.

Lausn fanganna
Tilraunir til að frelsa þrælana bar fyrst árangur með almennri fjársöfnun á Íslandi, í Danmörku og í Noregi nokkrum árum síðar. Um 35 Íslendingar voru leystir úr ánauð og af þeim sneru 27 aftur lifandi til Vestmannaeyja eftir 9 ára vist í Alsír. Margir karlmannanna gátu greitt eigin lausnargjöld með því fé sem þeir höfðu unnið sér inn með vinnu sinni í Algeirsborg. Lausnargjöld kvennanna voru hærri; t.d. var borgað hæsta lausnargjaldið fyrir konu séra Ólafs, en hún var seinni kona hans, ung og fríð. Nokkrum tókst að leysa sig á annan hátt t.d. með því að slá sér lán hjá hollenskum kaupmönnum.

Félagsleg vandamál í kjölfar Tyrkjaránsins
Margvísleg vandamál sköpuðust í hinni löngu fjarveru Íslendinganna. Margir karlar höfðu t.a.m. misst eiginkonur sínar í hendur Tyrkjanna og öfugt. Makarnir sem heima sátu tóku oft saman við aðra í sömu stöðu. Ekki var mögulegt að veita giftingarleyfi nema maki hefði verið fjarverandi í 7 ár og því taldist athæfið hórdómur sem samkvæmt lögum var refsiverður með dauðadómi.. Fæstum þótti mannúðlegt að beita þessari hörðu hegningu á samfélagið sem hafði þegar þolað svo mikið. Því var leitast við að fá dóma mildaða í slíkum tilfellum. Gefinn var út heldur loðinn konungsúrskurður en hann var túlkaður á þá leið að milda skyldi dóma yfir fólki í þessari stöðu.

Varnir í Vestmannaeyjum í kjölfar Tyrkjaránsins
Eftir Tyrkjaránið kom einnig í ljós að Vestmannaeyingar þurftu nauðsynlega á vörnum að halda. Stjórnvöld hröðuðu viðgerðum á varnavirkinu, Skansinum, sem var upprunalega byggt árið 1586 til að verja konungsverlunina í Eyjum ágangi breskra kaup- og sjómanna. Danskur herþjálfari var fenginn til að hafa umsjón með landvörnum frá Skansinum. Starf hans fól í sér að skipuleggja vökur á Helgafelli og að hafa gát á skipum. Hann átti einnig að stofna og þjálfa upp herlið heimamanna. Æfingar voru haldnar einu sinni í viku og voru allir byssufærir menn skyldaðir til þátttöku. Árið 1639 tók Jón Ólafsson Indíafari við stöðu byssuskyttu við Skansinn og eftirmaður hans og síðasta byssuskytta Skansins var Gunnar Ólafsson. Vestmannaeyingar héldu vökur á Helgafelli fram yfir árið 1700.
fitbike pro park