Riddarar Miðalda Riddarar urðu til á miðöldum eða frá u.þ.b 800 e. Kr . til rúmlega 1450 e. Kr en entust aðalega á tímum lénskipulagsins . Þeir voru með mikilvægari stríðsmanna allt þar til fallbyssur og rifflar leistu þá af hólmi. Á miðöldum riðu margir riddarar út til bardaga. Þeir sátu um aðra kastala, lengi var þeim skipað til blóðugra bardaga og vernda þeira eiginn kastala á móti umsátrum óvina. En riddarar voru ekki alltaf svo góðir að berjast. Riddarar þurftu að þreyta langra, erfiða jafnvel hálfleiðinlega klukkutíma af æfingum. Fyrst þurftu þeir að verða riddarasveinar (e. page ) og ef þeim gekk vel gátu þeir orðið skjaldsveinar (e. squire ) og ef skjalsveinar voru orðnir þess verðugir voru þeir slegnir til riddara.
Efnisyfirlit


Riddarasveinn

Sonur riddara var yfir leitt fimm til sjö ára sendur frá heimili sínu til nálægs kastala. Þar var hann þjálfaður til riddara af höfðingja (e. lord ) kastalans.þá verður hann er svokallaður Riddarasveinn. Riddarasveinn hjálpar herra (höfðingja) sínum að klæða sig í brynjuna og setja upp vopninn . Hann leikur marga æfingaleika þar á meðal glímu, háhestaglímu ( piggy - back wrestling ), sverð æfingar með oddlausum viðarsverðum og pínu litla viðarskyldi (buklara) og landæfingar á rúllandi trjábolum dregnum af tveimur öðrum riddarasveinum, áfram að markstólpa (sem var oft hreyfanlegur). Á hinum endanum sandpoki. Þegar riddaraspjótið hittir markið þarf ungi riddarasveinninn að víkja sér undann eða pokinn fullur af sandi mun hitta hann. En sjaldann var þeim kennt að lesa eða skrifa því það var ekki talið vera riddaralegt í þá daga. Kastalafrúrnar kendu honum þó borðsiði. Riddarasveininn beið alltaf eftir kastala heranum eða frú það var hanns skylda og forréttindi að blanda geði með kastalahöfðingjanum og frúnni á öllum tímum. Hann lærði að veiða. Honum var kennt að vera snöggur, þakklátur, sveigjanlegur og örlátur.honum var líka kennt hvernig áttu að umgangast eigur og gera við þær. Þegar brynja kastalahöfðingjans var ryðguð rúllaðiiddarasveininn henni í tunnu fullri af sandi svo að ryðið hyrfi eða minkaði.


Skjaldsveinn

Til að geta orðið riddari þurfti maður fyrst að verða skjaldsveinn Riddara eða þar til Riddarinn sjálfur slægi þig til riddara þegar honum fannst þú tilbúinn. eða frá 17-21 árs. Seinna slóu drottnigar eða kóngar til riddara og þótti (og þykir enn) mikill heiður. En áður en þú varðst sleginn til riddara varðstu skjaldsveinn og varðst að þola alls kyns raunir og undirbúning. áður en hann gat orðið skjaldsveinn riddara varstu fenginn til að biðja fyrir Riddaranum alla nótina og riddarasveinnin var klæddur upp í hvítan kyrtil. En eftir það gat hann orðið skjaldsveinn um fjórtán ára aldurinn, varstu þá krýndur skjaldsveinn. Skjaldsveinn er aðalhjálparhella og þjónn riddara. Í bardögum voru þeir fengnir til að færa riddaranum vopn, nýja brynju, eða eitthvert verkfæri sem honum þarfnaðist því þurftu þeir að geyma allt aukaefni riddara, þar á meðal auka hest, auka brynju, skyldi, riddaraspjót þá fyrst vandist skjaldsveininn á þung vopn og brynjur. Skjaldsveinar léku oft leiki með alvuru vopnum á móti riddurum. Skjaldsveininum var kennt að sitja hest í fullum skrúða og með því að hafa hendurnar fríar til að bregða sverði og nota skjöld eða öðrum vopnum á meðan hann var skjaldsveinn var honum leift að bera sverð og skjöld, sem sýndi hvað skyldum hann gengdi .


Krýning til Riddara


Þegar skjaldsveinn var sleginn eða krýndur til riddara kraup hann á hné fyrir húsbónda sínum svo sló herra hans hann utan undir með sverðsblaðinu eða hendinni. Á meðan húsbóndinn gerði það sagði hann: „ég nefni þig riddara” (e. “i dub thee knight ”) þá tók hinn nýji riddari við brynju, sverði og skildi, allt saman með mikla merkingu. En það kom líka fyrir að riddarar krýndu skjaldsveina sína bara til riddara í bardögum. Skjaldsveini var kennt að drepa ekki marga riddara, því flestir riddarar héldu öðrum riddurum fyrir lausnagjald.


Burtreiðar

Burtreiðar voru fyrst stundaðar sem æfingar á fryðar tímum og hentaði vel sem æfing fyrir skjalsveina að sitja hest með vopn og skjöld seinna var þetta orðið vinsælt og fólk fyrtist að til að horfa á þá voru bygðir sérstakir vellir með stúkum og sæti fyrir kónga og kastalahöfðingja og má seigja að þetta hafi eiginlega tekið við af hringleikum rómverja


Heimildir

* Greinin „Knight“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 8. desember 2005.
* Sigríður Arnardóttir et al. Alfræði unga fólksins. Örn og Örlygur, 1994. 9979550465
Nei bara pæling.