Lífshættir Rómverja Jæja var að lesa um virkni áhuga málsins er því ekki tilvalið að skella inn einni grein. Þessi þáttur fjallar um upphaf Rómverja

Líf og lífshættir Rómverja.

í byrjun Rómar tímans er erfitt að gera sér nákvæmlega grein fyrir því hvernig þeir lifðu því flestar heimildir brunnu í Róm um 300 f. Kr. af Göllum. Sagt er að Rómverjar hafi verið að flýta sér svo mikið að byggja borgina að þess vegna séu elstu götur hennar svo skakkar en þegar heimildirnar brunnu myndaðist fullkomið op fyrir þjóðsögur eins og Rómúlus og Remus sem allir þekkja.

Rómverjar voru yfirleitt meðalmenn. Þeir bjuggu í byggingum svipuðum þeim og ríkustu Etrúskar. Hver einasta rómverska fjölskylda átti þræl og konur unnu ekki eins mikið og í Grikklandi sökum þrælana. Því höfðu mæður nægan tíma til að ala börn sín. Elsti karlmaðurinn var alltaf húsbóndinn og réði öllu innan fjölskyldunnar. Ef kona hans syndgaði mátti hann ráða hver refsinginn yrði jafnvel drepa hana. Þetta kom þó ekki í veg fyrir það að þau elskuðust heitt og þó að húsbóndinn réði yfir börnum sínum kom það heldur ekki í veg fyrir að þau unnu öllum nokkuð jafnt. þegar karlfaðirinn var orðinn gamall var það skylda þess yngri að hjúkra honum. Jarðafarir voru stór hluti á tímum fyrstu Rómverja til þeirra seinustu. Konum var samt bannað að gráta. Ekki er vitað af hverju það var gert.

Rómverjar trúðu á marga guði og voru sífellt að helga þá, sumir segja þá yfir 30.000 og aðrir Grikkir kvörtuðu yfir því að í sumum borgunum voru jafnvel fleiri guðir en menn.

Rómverjum var skipt í cohorts og þeim í hundraðsdeildir hver hundraðsdeild átti seinna meir sinn þingmann, ekki í senatinu heldur minna þingi sem senatið naut aðstoðar. Hverjum Rómverja var skylt að fara í herskóla og í einu og öllu var þeim raðað í hundraðsdeildir sem æfðu og börðust saman. Þegar Rómverji var orðinn 16 vetra varð hann að fara í herskólann. Til að geta orðið senator og eða hershöfðingi þurfti hann að vera búinn að gegna herrþjónustu í a.m.k. 10 ár. Þó var veitt undantekning eins og með Scipíó Afrícanus. Dætur máttu vera giftar 12 ára og var þá gerður kaupmáli svipaður og tíðkaðist í Íslendingasögunum.

En almennt var líf Rómverja gott og þeir þurftu yfirleitt ekki að vinna mikið en þó kom það fyrir að þegar menn komu frá stríði voru þeir búnir að safna upp skuldum af okurvöxtum bankanna. Þó svo að senatið hafi reynt að hamla vextina var það ekki nóg. Var þetta einn mesti galli á Rómverjum í byrjun tímanna en ef þú áttir engan pening fyrir skuldunum varstu úrskurðaur gjaldþrota af hundraðsdeildaþingmönnum sem gegndu einnig dómarastörfum.

Rómverjum var skipt í stéttir; þetta voru yfirstéttirnar en svo voru plebeiar sem fengu síðar hundraðsþingmenn og að kjósa plebeia á þing. Ef þú varðst gjalþrota þurftirðu ekki að fara í herinn heldur var þér leyft að vinna úr þínum málum eða flýja.

Endilega bætið við, leiðréttið eða komenterið, það þarf ekki allt að vera rétt því ég var nú í svolitlum vandræðum að muna þetta. Aðalheimild er Rómaveldi I eftir Will Durant.

Var að pæla að skrifa næst um herinn og skipan hans o.s.frv.
Nei bara pæling.