ATH: Þessi grein er ekki fyrir viðkvæma!

Hæ. Ég hef alltaf elskað raðmorðingja, þetta hefur lengi verið eitt af mínum aðal áhugamálum. Hér hef ég ákveðið að skrifa um fimm uppáhaldsraðmorðingjana mína okkur öllum til skemmtunar (þó aðallega mér).

Nú veit ég að þessi grein verður umdeild en þetta er nauðsynleg umræða og ég sé ekkert að því að benda á að svona menn séu til. Sumum finnst kannski skrítið að ég æsist upp við þessar hugsanir en það verður að hafa það. Ég elska raðmorðingja.

Bara til gamans…Þetta á við um flesta raðmorðingja:

-Þeir eru hvítir karlmenn á aldrinum 20-30 ára
-Þeir eru háðir eiturlyfjum eða áfengi
-Þeir áttu hræðilega æsku og var misþyrmt
-Á barnsaldri pyntuðu þeir dýr, kveiktu í og pissuðu undir


Hér er listinn minn:


Nr. 5:Andrei Chikatilo

Andrei, sem fæddist í Úkraínu var alinn upp í þeirri trú að eldri bróðir hans hafi verið drepinn og étinn. Mamma hans sagði honum söguna um þetta reglulega og ólst hann upp við hugsanir um þennan atburð. Andrei var hálf blindur, ófríður og kynferðislega skertur. Hann útskrifaðist úr skóla og gerðist kennari. Hann virtist þó eftir það ná að lifa frekar góðu lífi, hann giftist og eignaðist tvö börn. Hann þótti einstaklega rólegur og góður maður sem meiddi aldrei flugu, en hann meiddi og drap yfir 50 manneskjur í staðinn. Hann byrjaði á því að þreifa á stelpum í sundi og æstist kynferðislega við það. Þetta var ný nautn sem hann hafði aldrei áður fundið. Hann fór að drepa vændiskonur og flækinga og var að sínu eigin mati að losa heiminn við óþverra. Hann beit líkamsparta af fórnarlömbunum meðan þau voru lifandi, skar úr þeim tungurnar, hausinn og eldaði oft og át. Yfirvöld tóku að sjálfsögðu eftir því hversu mikið fólk týndist og var hann að lokum handtekinn og færður fyrir rétt. Í réttarhöldunum voru líkamspartar fornarlambana notuð sem sönnunargögn og þið getið fundið myndir af netinu af þeim ef þið viljið (ég er með þá sem wallpaper þannig ef þið viljið hringið í mig og komið heim til mín og ég skal sýna ykkur). Áður en dómur var kveðinn upp mælti hann hin frægu orð “I AM A MISTAKE OF NATURE, A MAD BEAST!”. Hann var leiddur inn í herbergi árið 1994 og tekinn að lífi með byssuskoti í hnakkann.

Nr. 4:Albert Fish

Fish drap ekkert sérlega marga miðað við suma aðra raðmorðingja. “Aðeins” 15-18 manneskjur eru taldnar hafa fallið fyrir hendi hans. En hann þykir engu að síður einhver viðurstyggilegasta manneskja sem sögur fara af. Fish fannst einstaklega gaman að stinga nálum í gegnum punginn á sér og ganga með þær þar í marga daga og lemja sig með naglaspítum. Uppáhaldið hans var þó bleyta sokk með alkahóli, troða upp í rassgatið á sér og kveikja í. Frægasta morðið hans var þegar hann tók hina 12 ára gömlu Grace Budd með sér í afskekktann sumarbústað og lék sér þar að henni. Hann kyrkti hana og skar með hníf. Síðan eldaði hann hana í potti, gerði kássu úr kjötina og át það. Eftir morðið sendi hann foreldrum stelpunnar bréf þar sem hann lýsti nákvæmlega öllu sem hann gerði við dóttur þeirra. En tók það þó sérstaklega fram að hann hefði ekki misþyrmt henni kynferðislega. Þvílíkt gull að manni. Árið 1936 var hann settur í rafmagnsstólinn. Hann hjálpaði fangavörðunum að binda sjálfan sig og lýsti því yfir að þetta væri “the ultimate thrill”, það eina sem hann ætti eftir. Það þurfti tvær umferðir af straumi til að drepa hann og virtist honum ekkert finnast það neitt leiðinlegt.

Nr. 3:Pedro Alonso Lopez

Suður Ameríski “sjarmörinn” Pedro er skæðasti raðmorðingji sem vitað er um. Hann myrti yfir 300 manns. Þegar hann var ungur henti mamma hans (sem var vændiskona) honum út af heimilinu. Þar var hann tekinn upp af barnanýðing og misþyrmt hrikalega. Hann gerðist glæpamaður á unglingsárum og fór í fangelsi. Þar var honum misþyrmt af 3 eldri föngum aftur og aftur. Þá breyttust hann úr hræddum strák yfir í skrímsli og áður en hann slapp úr fangelsinu myrti hann þremenningana á hrottalegann hátt. Eftir það ferðaðist hann um suður ameríku og myrti um það bil þrjár smástelpur á viku þar til hann var handtekinn. Þá benti hann lögreglunni á grafir um það bil 50 stúlkna sem hann drap. Margir telja að talan 300 sé alltof lág þegar um er að ræða fórnarlömb Pedro.

Nr. 2:Jane Toppan

Ein af fáu kvenkyns morðingjunum. Femistar eru örugglega ánægðir með þessa því þær vilja jafnrétti á öllum sviðum. Þegar Jane var stúlka dó mamma hennar og faðirinn var sendur á geðsjúkrahús eftir að hann saumaði saman á sér augnlokin. Jane var ættleidd og varð síðar hjúkrunarkona. Hún var falleg og sjarmerandi. Þótti einstaklega góð og elskuleg kona. Hennar markmið var þó að slá met í morðum á sjúklingum. Þó að henni hafi ekki tekist það er talan sem hún komst upp í ekki slæm, hátt upp í hundrað. Hún gaf eitur og drap heilu fjölskyldurnar. Jane var sett á geðveikrahæli en ekki tekin af lífi eins og karlkyns morðingjar voru yfirleitt. Hún lifði lengi á hælinu og dó sem gömul kona.

Nr. 1:Ted Bundy

Ahhhh, Ted. Hvað get ég sagt? Sumar stelpur eru skotnar í Tom Cruise eða Brad Pitt en ég vil Ted Bundy. Mig dreymir um hann. Sem unglingur var hann þunglindur og hrikalega feiminn en þegar hann varð fullorðinn var Ted myndarlegur, háskólamenntaður og framtíðin var björt. En hann vildi ekki lifa venjulegu lífi. Hann eyddi öllum stundum í að “stalka” ungar konur og tæla þær. Hann þótti mikill sjarmör. Fallegur og öruggur með sig og tókst því oft vel upp. Hann keyrði um á Volkswagen bjöllu og fékk konur inn til sín með mörgum ráðum, þar barði hann þær og keyrði með á annan stað. Þar nauðgaði hann þeim, lamdi sundur og saman, beit og drap svo eitthvað sé nefnt. Guð einn veit hverskonar þjáningar þær hafa gengið í gegnum í “heimsóknum” sínum til hans. Hann var með eitthvað “fetish” fyrir dökkhærðum klappstýrum og náði oft í þannig stelpur á háskólalóðum. Eftir að Ted var handtekinn varð hann eitt mesta fjölmiðlamál síðustu aldar í Bandaríkjunum. Hann varði sjálfan sig sem lögfræðingur og var alltaf í fréttum. Hann elskaði frægðina og brosti í myndarvélarnar. Hann eignaðist marga kvenkyns aðdáendur sem báðu hann að giftast sér. Eftir 11 ára á dauðadeild var hann settur í rafmagnsstólinn. Síðasta máltíð hans var steik með eggjum, hasskaka og kaffi. Rétt er að taka fram að Bundy tilheyrði fjölskyldu sem er ein af Illuminati bloodlines og stjórnar heiminum. En ég ætla ekkert að fara út í það í þessari grein.

Takk fyrir mig og passið ykkur á þeim.