Við hér á /romantik höfum ákveðið að halda smá bannerkeppni svo að við fáum nú banner sem passar betur við áhugamálið heldur en þessi sem var settur þegar útlitinu var breytt.

Frestur til að skila inn bannerum rennur út 20. sept nema eitthvað óvænt komi uppá.

Ég hvet alla sem vilja til að taka þátt, en reglurnar eru svona:

- Bannerinn þarf að vera 629px x 107px og formið verður að vera .png
- Þið sendið bannerinn inn sem mynd en hann verður að vera merktur “Keppni - ”
- Þegar skilafrestur rennur út þá verða allir bannerarnir samþykktir í einu inná myndakubbinn og könnun sett í gang þar sem notendur geta valið þann banner sem þeim finnst flottastur. Sigurbannerinn fær svo að vera efst á /romantik um ókomna framtíð.

Ég vona svo sannarlega að sem flestir taki þátt enda ætti ekki að vera erfitt að finna eitthvað tengt /romantik, svo er auðvitað bara gaman að vera með :)
Það er líka nægur tíma til stefnu enda rennur fresturinn ekki út fyrr 20. september eins og áður sagði.

Með von um mikla þáttöku
- Stec