Já ég er nýr stjórnandi hérna á /romantik og vil byrja á því að þakka fyrir það traust sem mér er sýnt :)

Ég sagði frá því í umsókninni að ég vildi setja af stað smá greinaátak og ætla ég aðeins að útskýra hvernig ég hafði hugsað þetta.
Eins og sumir vita sem eru orðin vel sjóuð hérna á /romantik þá skrifaði ég mikið um mín sambandsslit. Einnig las ég efni eftir aðra sem lent höfðu í því sama og ég og það tvennt hjálpaði mér mikið.
Núna vil ég hvetja þá sem vilja að skrifa um sín sambandsslit, en þó kannski einblína á hvernig gekk að komast yfir fyrrverandi og hvað hjálpaði. Þar sem ég veit af eigin raun að það getur hjálpað mörgum sem eru föst í því að vera alveg ráðalaus um hvernig eigi að bregðast við sambandsslitum að lesa um hvernig aðrir hafa komist áfram.

Ég er alls ekki að þrýsta á neinn til þess að skrifa um þetta, enda mjög viðkvæmt og erfitt fyrir marga að rifja þetta upp. En hinsvegar vil ég hvetja fólk sem vill til þess að skrifa um hvernig fór hjá þeim, af því að ég veit að það hjálpar svo mörgum.

Einnig vil ég benda á að öllum er frjálst að senda mér og auðvitað hinum stjórnendunum hérna einkaskilaboð um hvað sem er tengt áhugamálinu.

Með von um gott samstarf hér á /romantik :)