Jæja, nú fer senn að líða að því að við verðum uppskroppa með kannanir hér á áhugamálinu. Biðlistinn er orðinn mjög stuttur, ég hvet ykkur öll til þess að senda.. Vil ítreka að ég vil bara vandaðar kannanir með öllum svarmöguleikum og vil helst ekki að einn notandi sendi inn 10 stykki eins og stundum vill gerast. Verið nú frjó!;)

Ég vil einnig vekja athygli á dálki hérna á áhugamálinu sem þarfnast dálítillar athygli. Hann ber nafnið “Rómantísk lög, ljóð og textabrot” og gaman væri ef einhver sæi sig fært um að senda rómantíska texta eða ljóð, o.s.frv. til mín.

Kv, Heyja