Ég og kærastan Ég ákvað að senda inn mynd af mér og kærustunni þar sem við erum nú einu sinni “hugapar”, s.s. við kynntumst einmitt hérna á hugi.is/romantik. Um daginn áttum við þriggja ára afmæli, sem og vorum bæði að útskrifast úr skólunum okkar; ég úr háskólanum og hún úr menntaskólanum á Akureyri. Myndin er einmitt úr útskriftarferðinni okkar.