Þannig er það að ég er strákur sem er á 17. ári og er , tja meira en lítið hrifinn af einni stelpu sem er með mér í bekk. fyrir næsta skólaball sem er á næsta leyti þá verður fyrirpartí með kassagítarstemmingu fyrir þá sem vilja. Þá ætla ég að láta til skarar skríða því hún sagði mér að hún væri mikið fyrir stráka sem kynnu eitthvað á hljóðfæri, þá aðallega gítar :).
Og núna hef ég ekki hugmynd um hvaða lag ég á að spila til að gersamlega heilla hana upp úr skónum. Hvaða lag get égg spilað til að heilla stelpu upp úr skónum?
Nú vil ég að allir taki sig saman í andlitinu og svari mér(helst sem flestar stelpur), það væri mjög vel þegið.

P.S. get meira og minna spilað hvað sem ég tek mér fyrir hendur og syng ekkert alltof illa<br><br>Konur eru flóknasta uppfinning móður náttúru, án spaugs
“It's only after you've lost everything that you're free to do anything” - Fight club