Þannig er það að ég er hrifinn af stelpu.
Stelpan veit ekki af því og ég hef heyrt að hún sé hrifin af mér. Vinur minn er hrifinn af henni en hann veit ekki að ég er hrifinn af henni, né að hún sé hrifin af mér
Mamma hennar er hrifin af einstæðum föðru mínum og hann veit það ekki. Einstæður faðir minn er hrifinn af systur hennar. Hún veit það ekki og heldur ekki mamma stelpunnar sem ég er hrifinn af. Systirin er hrifin af mér en ekki ég af henni. Hún veit það ekki.
Hún heldur að ég sé hrifinn af henni en ekki systur hennar, sem ég er í raun hrifinn af.
Mamma mín er svo aftur á móti hrifinn af pabba stelpunnar sem er maður konunnar sem er hrifin af pabba mínum. Hann veit það ekki né heldur konan hans og ekki heldur pabbi minn. Ekki það að pabba mínum sé ekki sama en mér er ekki sama, því ef þau ná saman þá er stelpan sem ég er hrifin af tæknilega séð systir mín!

Æ bara að pæla hvort þið gætuð leyst úr þessari flækju:/