Síðustu mánuði hef ég verið í ansi miklum vandræðum. Ég er með stelpu og er fullkomlega ánægður í því sambandi Ég elska hana og allt er í því besta. En þannig er mál með vexti að Besti vinur minn er einnig í sambandi. Vandræðin byrjuðu á afmælinu mínu þegar ég fékk rósar blómvönd og mjög krafsandi kort frá kærustu vinar míns. síðan hefur þetta farið svona hægt og hægt vaxandi og hún er ekkert að fela það að hún sé að reyna við mig. Og ég hef nú aldrei verið feiminn við það að skella hurðum á stelpur sem ég vill ekki Og ef að aðstæður væru ekki þannig að vinur minn gæti særst í þeim þá væri ég löngu búinn að tala við hana en ég hreinlega veit ekkert hvað ég get gert. Á ég að tala við hana eða vin minn eða kærustuna mína? .. Ég er ráðþrota