Hæ<br>Það er frábært að það skuli vera búið að koma upp þessari síðu hér á Huga. Það eykur breiddina töluvert frá því sem við sáum fyrst. Það sem mig myndi langa til að heyra álit ykkar á er daður. Er allt í lagi að daðra til hægri og vinstri, jafn vel þótt maður sé í föstu sambandi? Eða daðrið þið bara þegar þið eruð að meina eitthvað með því?<br>Hvenær finnst ykkur að það sé farið yfir strikið og hafið þið einhvern tímann lent í vandræðum út af daðri?