Ég er geðveikt hrifinn af stelpu sem er með mér í bekk. Ég er í 9. bekk og reyndar nýr í þeim bekk sem ég er í, ég fór í 3 ár í annan skóla og kom síðan aftur í þennan sem ég er í núna.
En anyway ég var á diskóteki um daginn, allt gekk vel (eftir því sem ég best veit) við spjölluðum vel saman og sona en síðan næta dag í skólanum sat ég frammi og var að bíða eftir vini mínum þegar vinkonur hennar spurðu mig hvort ég væri hrifinn af henni (nefndu reyndar hana og aðra stelpu) með þessa fyrri sagði ég: ,,Nei eiginlega ekki“ og síðan spurðu þær um þessa sem ég var virkilega hrifinn af og ég panicaði og sagði: ,,ja… mér finnst hún alveg sæt”…..

Ok ég veit hvað þið eruð að hugsa núna, Djös fífl var ég !!!!
Gat ég virkilega ekki fundið uppá einhverju öðru til að segja ? Ég lét eins og krakki í 4. bekk sem væri of feiminn til að segja henni hvað mér finnst.
Það er ekki eins og ég geti ekki sagt henni að ég sé hrifinn af henni en hvað ef hún fer bara að hlæja og kallar mig lúða eða eikkað ?????
Ég meina hvað á ég að gera ?<br><br>I Fight Fire With Fire…