Ég ætla að byrja greinina á því að segja ykkur að gleyma fyrri póstum mínum hér á rómantík.
Seinasta laugardag var haldið Te bo hjá MR og ég (sem er í MR) fór á þetta. Þetta var að mig minnir geðveikt kvöld en það súra við það er að ég hitti tvær stelpur sem ég þekkti af einskærri tilviljun. Ég var að reyna við þær á fullu og fékk eitthvað að launum en þær sögðust allar ekki geta verið með mér vegna þess að vinkona þeirra var hrifin af mér og ég fór þá bara aftur á höstlið en að sjálfsögðu þá hitti ég þessa vinkonu og það næsta sem ég veit er að við erum í hörku sleik og ég eyði síðan kvöldinu með henni þar til þetta var búið (þurr á vörunum og alles). Mánudaginn eftir mæti ég í skólanum með fiðring í maganum því að ég kemst að því að hún er líka í MR og líka vinkonur hennar. Ég rétt næ upp kjarki til að að segja hæ við þær en nú er allt í gangi hjá mér og þessarri sem ég fór í sleik við og allt í fínasta standi. Svona fer djammið með mann!! =0)<br><br>Lifi funk-listinn
Lifi funk-listinn