Hokeypokey: Uppáþrengjandi, já. Þráhyggja, já. Treystirðu kærastanum þínum? Það að kvenfólk sé síhringjandi til að athuga hvar og hvað kærastinn sinn sé að gera er eitt af því sem mest fer í taugarnar á mér. Ef hann segist vera að fara á fund kl 20:00 og segir kannski ekki hvenær hann er búinn ? Sérstaklega þar sem þú spyrð sjálf, “Hvað eru svona fundir langir?” Ég ætla að leyfa mér að efast um það að þú treystir kallinum þínum miðað við það sem þú segir hér. En ef það er rangt, þá myndi ég athuga með það að læra að slappa aðeins af.
Afhverju hringdi hann ekki: Af því hann var á fundi, eins og hann var búinn að segja þér…
“Á ég þá að bíða og láta hann eltast við mig eða finnst honum ég vera uppáþrengjandi” …. … … Er ekki allt í lagi ?? 1 og hálfur tími og heimur þinn er að farast ? Það er ekkert spurning um það hver er að eltast við hvern hérna. Hann var á fundi, fundir geta dregist, þú vissir af því að hann var að fara á fund. Já, að mínu áliti ertu mjög uppáþrengjandi, og vænissjúk hugsanlega.
“Hvað eru svona fundir langir? Sofnaði hann kannski? Hann hefur ekki svarað sms frá mér :(” Ætli fundurinn sé ekki jafn langur og hann þarf að vera ? Ef hann hefur sofnað, Þá so be it. Kemur fyrir besta fólk. Hann svarar ekki sms frá þér, það þýðir ekki að hann hafi ekki lengur áhuga á þér , eða að hann “elski” þig ekki lengur. Kannski er síminn á silent, ( líklegt vegna fundar) kannski gleymdi hann sms-inu, það kemur alveg fyrir. Eða kannski vildi hann bara ekki svara þér vegna þess að þú “virðist” vera mjög uppáþrengjandi manneskja.
Ef að einn og hálfur tími veldur þér svona miklum kvíða og/eða óróleika, þá þætti mér ekki gaman að sjá hvað gerist þegar lengri tímar líða á milli þess að hann svari þér ekki… Ég legg til að þú takir hlutunum rólega. Þú virðist vera orðin aðeins of “attached” við þennan mann á stuttum tíma. Ég er ekki að segja að það sé slæmt mál. En karlmenn eru eins og þeir eru og gæti hann einfaldlega fengið leið á því að vera undir stöðugu áreiti um það hvar hann sé og hvað hann sé að gera og af hverju hann sé ekki búinn að svara smsinu sem þú sendir fyrir 2 mínútum og 30 sekúndum síðan. ..
Kvenmaður. Slappaðu af!
<br><br>Vectro
“Women might be able to fake orgasms. But men can fake whole relationships.”
“Face it. We all want women who will pamper us like our mothers, and screw us like the government.”
Ég styð afbann Engel´s!