Hefurðu einhverntímann elskað einhvern það mikið að þú hefðir dáið fyrir hann/hana?? Hefurðu einhverntímann sært hann/hana óviljandi í einhverjum fíflagangi og séð síðan eftir því alla tíð?? Það kom fyrir mig og ég sé mikið eftir því!!
Þrátt fyrir að það sé komið rúmlega ár síðan við hættum saman og sambandið stóð bara í 4 mánuði þá hefur mér ekki ennþá tekist að komast yfir hann. Þegar ég sé hann úti á götu þá fæ ég í magann og hnéin vilja gefa sig, röddin vill heldur ekki virka rétt…
Þetta er ömurlegt ástand og mig langar ekki að vera svona.

Eru til einhver húsráð við því að komast yfir stráka??
Delos Crapos