Ég er búinn að vera hrifinn af stelpu frekar lengi og fljótlega eftir að ég var byrjaður að vera hrifinn af henni komst ég að því að hún var hrifin af mér, meira að segja MJÖG hrifin af mér. Ég reyndi við hana, talaði oft við hana var nice, var skemmtilegur (égr reyndi samt að vera ekki of væminn, ég var meirihlutann með vinum mínum). Svo hitti ég hana út á götu með vinkonum sínum (ég var einn)og við ákváðum öll að vera öll samferða (við vorum öll saman í bekk, allir vinir). Svo kemst ég að því að þetta var allt gert eftir áætlun til að ég myndi opinberlega spurja hana hvort hún vildi byrja með mér. Ég gerði það og þá droppar hún sprengju: hún var með öðrum strák allann tímann og valdi síðan að halda áfram með honum. Er þetta ekki frekar tíkarlegt að gera manni þetta? Hvað finnst ykkur? Hvað á ég að gera?