Jæja það er nú frekar langt um liðið síðan ég kom hingað síðast og hef skemmt mér vel við að lesa pistlana hér á rómantík. Ég hef komist að því að ég er greinilega ekki mikið fyrir augað því ég er ljóshærð, lítil og eiginlega bara pínkupons. Maðurinn minn er ekki árennilegur því hann er ekki týpa, bara þessi gamli góði lopaljóshærði, hvíti íslendingur (reyndar sá laaangflottasti) og guess what!! hann er nice guy!! og ég er bara ekki að trúa því að fólk horfi svona mikið á útlitið þegar það er að lýsa draumakonu/manni.. Þið eigiið mörg eftir að líta til bara með bros á vör þegar þið sitjið með framtíðarmakanum og sjáið hvað hann er allt annað en það sem þið lýstuð en samt allt sem þið viljið :) Ég held að það sé bara tilviljun ef framtíðarmakinn passar við lýsinguna.

þetta er nú samt meira til gamans gert hjá mér að vera að henda þessu fram, sjálf átti ég enga lýsingu á mínum draumaprinsi.

lifið heil
daja