ok.. þannig er nú málið að ég held að ég sé lessa eða bi!!

here´s the story:

ég ætla að byrja á því að segja ykkur að ég er 16 ára…
ég kynntist stelpu í haust, kanski mánuði eftir að ég kynntist henni þá fann ég að ég hreifst eitthvað að henni.. ég horfði mikið á hana og leið vel með henni, við kynntumst betur og urðum bara mjög góðar vinkonur!!! sem er jú auðvitað bara gott mál… en ég er svo ógeðslega hrifin af henni að ég er gjörsamlega að deyja!! við fórum ásamt fleyri krökkum í sumarbústað og þar var mikið djúsað… ég var svo helv*** full að ég gat ekki haldið augunum opnum, hún var líka frekar full.. og svo byrjaði ég að grenja (ok nú hugsa allir: auli) og var að reyna að segja henni að ég væri hrifin af henni, en kom því aldrei útúr mér! svo deginum eftir þegar ég var komin heim, þá sendi hún mér sms, og spurði hvað það var sem ég var að reyna að segja henni, ég neitaði fyrst að segja henni því ég vorkenndi henni fyrir að ÉG skuli hafa verið hrifin af henni… en á endanum sagði ég henni þetta og hún tók því ekki ílla, en tók það fram að hún væri hvorki lessa né bi (semsagt að ég hefði engann séns), ég vissi það alveg og tók því auðvitað ekkert illa!!
en jæja… nú erum við ennþá góðar vinkonur, og ef ekki bara betri vinkonur, gerum mikið saman og þannig!! EN.. ég er að deyja úr ást og ég sver það að þetta hlýtur að vera ást, það getur ekkert annað verið! fyrir ca. 2 vikum gisti ég hjá henni 2 daga í röð, í sama rúmi og allt það!! og við töluðum mikið sman og svolleiðis en ekkert gerðist, ég þorði ekki að drullast til þess að gera eitthvað, þó það væri ekki nema bara að kyssa hana! og auðvitað naut ég þess að liggja báðar næturnar rétt við hliðan á henni…

en svo er málið að mig langar svo rosalega til þess að spurja hana hvort hún vilji prófa eitthvað með mér, þó það sé bara smá… en hef ekki kjark til þess og er búin að missa af besta tækifærinu til þess, sem reyndar gæti komið aftur…!

ég tek það fram að ég er bæði hrein mey og hef aldrei prófað neitt með stelpu…

og getiði nú svarað spurningunum mínum: er ég lessa eða bi eða bara alveg gagnkynhneigð? ætti ég að spurja hana hvort hún vilji prófa eitthvað? mundi það ekki eiðileggja vináttuna?

plís svarið mér, þið vitið alltaf best!!

kv. ZoRe