Ég ætla bara að vona að fleiri en minn maður hafi nýtt sér góða veðrið sem við höfum fengið þetta sumarið… Það er ekkert rómantískara en að keyra upp að einhverju vatni með elskunni sinni að kvöldi til og setjast niður í móann eða á ströndina, bara sitja saman og haldast í hendur í smá tíma, mér fannst það allavega æðislegt! Svo má náttúrulega gera eitthvað meira líka! Eða allavega skemmir það ekki…! Gaurinn minn fann allaveg upp á þessu í síðustu viku og ég var bara uppi í skýjunum eftir kvöldið..það versta er að ég er ekki alveg viss um hvernig ég á að endurgjalda honum þetta…