Stelpur, komið með sæt gælunöfn sem þið hafið kallað strákana í lífi ykkar og hvað þið hafið verið kallaðar
Strákar, hvað fannst ykkur gaman að vera kallaðir og hvað hafið þið kallað ykkar stúlkur

Sýnið svo hversu frumleg og ástrík þið eruð :)

Til að byrja þetta þá á minn það til að kalla mig stjörnurnar&sólina sína eða allskonar sem endar á dís, draumadís þegar hann er í góðu skapi, dramadís þegar ég er það ekki, kúrudís/letidís þegar ég vil sofa lengur á morgnana :P Ég er samt ekki jafnfrumleg, enda alltaf á því að kalla hann bara ljúf eða dólg :P
…—…