Sagan min gengur út á erfiðleika í sambandinu mínu, ég hef verið með þessari stelpu í næstum því 3 ár og ef yfirmig um ástfanginn af henni, nema ég hef verið að efast í yfir um 2 ár (án djóks) hvort hún elski mig og þráir mig jafn mikið til baka.

Byrjaði allt fyrir 2 árum þegar hún hitti einhvern gaur yfir einhvern facebook leik sem bjó í bandaríkjunum, hún byrjaði að tala við hann alla daga, allar nætur og vakti alveg 4-6 tímum lengur en ég, oft bara til þess að tala við hann, hún leyfði mér margfat léttilegra að fara á djammið einn, út á rúntinn no problem, því hún vissi að hún myndi bara chatta við þennan gaur, ég náði að enda þetta rugl heppilega, tók mig 3 mánuði að fá hana til að hætta þessu, en núna í dag er hún byrjuð aftur að tala við einhvern gaur, sem verra er að hann er frá íslandi, ég var búinn að nappa hana fyrir þetta og segja henni að hætta eftir að ég sá að hún var að skíta yfir mig og sambandið okkar við þennan gaur, en við töluðum saman og hún sagðist ætla að hætta en í morgun komst ég að því að hún er búinn að vera að deleta facebook chat history og heldur samt áfram að tala við hann, ég veit ekki hversu mikið, ég sá bara að það voru skilaboð í morgun sem hún hafði deletað þegar hún vaknaði.

Við eigum krakka saman sem gerir þetta svo erfitt fyrir mig að átta mig á því hvað hún vill, við sofum mjöög lítið saman, hún kemur alltaf með einhverja afsökun þegar ég gríp hana og reyni að láta hana gleyma því sem hún er að gera, taka til, læra, sjónvarp, talvan whatever bara til þess að kyssa mig, eitthvað rómo en satt að segja er ég kominn með nóg að vera ekki þráður.

Hvað fær stelpu til að láta svona? er hún komin með nóg af mér, leið, spennt fyrir öðrum?

Og strákar hvað mynduð þið gera í mínum sporum ?