Sælir Hugarar , þetta er eina sem er eftir fyrir mig ég er búinn að prófa allt , en hér er það sem er að ske fyrir mig.

Ég er 19 ára strákur sem er með 21 ára stelpu , erum búin að vera saman í næstum 2 ár , eigum hús , bíl , hund og kött saman og allt gekk vel þangað til núna.

Hún er pólsk sem þýðir það að hún þarf að fara heim og heimsækja af og til.
Seinast fór ég með henni og það var bara fínt , þetta sumar fór hún ein og meðan hún var þar sýndi hún mér engan áhuga og þegar hún kom til baka var hún allveg ömurleg.
Loksins náði ég að krista útur henni hvað væri að.

Hún segir að hún sé hætt að elska mig en veit ekki afhverju eða hvernig og það sem ég er að leitast við hérna eru ráðlög.

Ég vill alls ekki hætta með henni , hefur eitthver af ykkur lent í þessu?
Ef já hvað get ég gert til að fá hana aftur , og hvað getur hún gert til þess að elska mig aftur