Langar aðeins að tjá mig hérna.. ég hef það ekki í mér að fara tala við eitthvern sem þekkir mig.

Málið er það að ég er búin að vera deita einn strák í held ég 3.mánuði. Enn allavega þá hefur hann kynnst fjölskyldunni minni mjög vel, búin að koma í matarboð, útað borða og fjölskyldu djamm með öllum nánum ættingjum og hann hefur alltaf komið mjög vel fram við mig og öllum lýst mjög vel á hann. Ég veit kannski of soon að bjóða honum svona enn mamma vill bara að ég verði ánægð og hætti að vera eins og ég var.. Sem sagt ekki ánægð, alltaf pirruð & vildi helst bara vera ein og helst ekki tala við neinn eftir vinnu og svona allt eftir að ég og fyrrverandi hættum saman.. Þannig mamma spurði hann hvort hann vildi koma með og svona.
Allir eru að spurja mig hvort við ættum ekki að fara byrja saman og hvað við værum sæta og góð saman og svona.. MER FANST ÞETTA FÍNT EINS OG ÞETTA VAR!!
En síðan var ég forvitin hvað væri að fara gerast og hvert væri þetta að fara. Þannig eitt skipti ákvað ég bara að spurja hvað við værum og hvort það væri eitthvað meira að fara gerast á milli okkar og þá sagði hann Þetta er fínt eins og þetta er. Okei flott fanst mér því mér fanst ekkert af því…
En núna fynst mér hann ekki vera eins hrifin af mér eins og ég var af honum. Þannig mig langar að hætta hitta hann enn hvernig er hægt að hætta með manneskju sem maður er ekki með.. ?!?! Mig langar bara að þetta hætti! enn mig langar samt ekki að vera dónaleg og hætta bara svara eða hætta hafa samband..

Enn langar líka að seigja að þegar við kynntumst þá sagði eitthver gella við mig,, ekki fara með honum heim hann á bara eftir að nota þig og dömpa þér,, ég var fúl enn fór samt með honum heim.. enn eftir það höfum við verið geðveikt góð saman og við gerðum alveg full saman þegar ég var í fríi og svona.
Enn núna þessi helgi er að fara geðveikt mikið í mig, ég var í fríi og hann ætlaði að hitta mig.. hann beilaði á mér föstudag & laugardag.. því það var eitthvað strákadjamm þannig ég sætti mig við það og var alveg sama enn síðan svaraði mér síðan ekki á sunnudag..enn okei ég var ekkert sár bara smá pirruð.. Enn síðan var ég að sjá myndir af honum tögguðum á facebook með annari gellu.. heldur utan um hana.. Það er að fara mest í mig.. því hann er ekkert buin að tala við mig frá því á laugardaginn og þá var hann að seigja að hann ætli að beila í annað skipti..

Ég bara veit ekki hvað er í gangi.. og hvað ég á að gera.. Langar barað þetta hætti sem fyrst svoo ég þurfi ekki að pæla í honum meir..

Málið er að ég vill ekki að ég tali við fólkið sem þekkir mig er því að ég er búin að vera seigja hvað hann er góður og æðislegur og allt er frábært eins og það var… ég vil bara ekki faila meira..

Sorry hvað þetta er eitthvað útum allt hjá mér..