Jæja ég sá stelpu um daginn sem er alveg fáránlega falleg og fullkomin finnst mér, hef aldrei talað við hana en hún er í sama skóla og ég, ég veit ekki hvort þið hafið fundið þessa tilfinningu eða þegar þið sjáið manneskju í fyrsta sinn þá kviknar eitthvað þannig þið verðið hrifin af henni bara með því að sjá hana, en málið er bara að ég þekki hana ekki neitt, er með hana á fb og hún er á sama aldri og ég og í sama skóla en viti þið um einhverja leið til þess að kynnast henni svo það verði ekki sjúklega vandræðanlegt, ef ég myndi byrja að tala við hana á chat þá yrði það sjúklega vandræðanlegt að mæta í skólann daginn eftir og mæta henni og ég þekki hana ekki rass, þannig er einhver með leið til að kynnast stelpu hægt og rólega án þess að það verði vandræðanlegt? því ég þekki hana ekki rass ekki einusinni vini hennar.