„Hóra!“ skrækti hún þar sem ég blasti fyrir henni nakin með notaðar butt-beadskúlur vafðar um hálsinn. Hefðu aðstæðurnar verið öðruvísi hefði ég hlegið að ofurrænsæja viðurnefninu sem hún gaf mér.

Ég hljóp út án þess að líta til baka, niður tröppurnar og út á mölina. Steinarnir sukku inn í iljar mínar svo Ástríður náði mér undir eins og hélt áfram að lemja mig með eldhúsrúllu. Níels náði okkur við bíl bróður míns og hélt utan um konuna sína. Ég smegði mér nakin inn í bílinn og ætlaði mér að keyra í burtu en sá að Ástríður hafði lokað innkeyrsluna af með sínum bíl. Þá kom aðeins tvennt til greina, leyfa afbrýðisamri eiginkonu að berja mig smám saman til dauða með eldhúsrúllu eða eyðileggja elskuna hans bróður míns. Ég gaf í, eldhúspappír þyrlaðist upp í reykmökkinum. Ég keyrði inn í rjóðrið og út úr lífi hjónakornanna.

Nýtilkomið íslenskt kynlífsblogg: fanneymango.blogspot.com