Þekki semsagt strák (jafngamall og ég) sem á tvíbura systur..

Byrja á því að taka fram að ég er 16 ára og óreyndur í svona málum.
Fyrir rúmri viku síðan byrjaði ég að vera pínu hrifinn af henni og hef verið svoldið með henni, en málið er að hún er búin að vera að hitta einhvern annan í held ég 2 vikur en þau eru ekki saman..
Ef ég fer eitthvað að reyna við hana þá er ég svoldið að stela henni frá hinum gaurnum sem ég veit ekkert hver er, finnst fólki eitthvað að því ?
Meina ef ég byrja að reyna meira við hana og hún hugsanlega missir áhugann á hinum og við myndum síðan enda saman væri ég þá að “stela” henni frá honum, væri það illa séð ?
Þessa viku sem ég hef verið að tala svona við hana höfum við verið að kúra aðeins saman og farið kannski stundum í göngutúr og svona allt mjög rólegt og fínt en allan þennan tíma hefur hún líka verið í sambandi við hinn gæjann (sem mér btw. finnst ekki gaman)

En ég er núna orðinn svoldið hrifinn af henni og langar að gera e-ð meira úr þessu, væri það eitthvað rangt/illa séð að ég væri að byrja með stelpu sem er atm. að hitta annan (ekki mjög mikið samt) og er systir vinar míns (ekki neinn svaka vinur en hitti hann stundum og svona)
Hvað á ég að gera, halda áfram að hitta hana eða bara gleyma þessu ?


Á rosalega erfitt með að koma þessu skiljanlega út úr mér.. svona er þetta í hnotskurn (held ég)

Þekki strák sem á tvíbura systur og ég er hrifinn af henni.
Hún er að hitta annan strák, ekki mikið samt en ég veit að hún er hrifin af honum.
Ég vil vita hvort það sé eitthvað rangt af mér að vera að hitta hana þegar hún er hrifin af öðrum og er systir félaga míns..


Ég vissi allan tímann að hún væri að hitta þennan strák en svo núna fyrir 2 dögum komst ég að því að sambandið þeirra er aðeins meira en ég hélt og hef verið hálf þunglyndur síðan, finnst ég bara lamaður :(



Veit að þessi texti er ekki vel skrifaður og möglega ekki auðvelt að skilja hann en vona að einhverjir fatti hvað ég meina og geti komið með gagnleg svör, ég er niðurbrotinn.
Tell your boyfriend if he says he's got beef,